Fara beint í efnið
Leitaðu á Ísland.is
Leitaðu á Ísland.is
EN
Einstaklingar(https://island.is/minarsidur/)Fyrirtæki og umboð(https://island.is/bff/login?prompt=select_account)
Mínar síður Einstaklingar(https://island.is/minarsidur/)Fyrirtæki og umboð(https://island.is/bff/login?prompt=select_account)
Einstaklingar(https://island.is/minarsidur/)Fyrirtæki og umboð(https://island.is/bff/login?prompt=select_account)
Mínar síður Einstaklingar(https://island.is/minarsidur/)Fyrirtæki og umboð(https://island.is/bff/login?prompt=select_account)
EN
Valmynd
Leitaðu á Ísland.is
Þjónustuflokkar
Lífsviðburðir
Opinberir aðilar
Réttindi og skyldur
Hlusta
Einstaklingar búa að ákveðnum réttindum og skyldum í samfélaginu.
Flýtileiðir
Lögræði, sjálfræði og fjárræði(https://island.is/loegraedi-sjalfraedi-og-fjarraedi)
Kosningaréttur(https://island.is/skilyrdi-fyrir-kosningaretti)
Réttindi og skyldur einstaklinga eru skýr samkvæmt lögum frá fæðingu til andláts. Réttindi segja til um hvers einstaklingur getur krafist af samfélaginu, en skyldur segja til um hvaða kröfur samfélagið getur gert til einstaklings.
Að fæðast
Barn fætt á Íslandi fær úthlutað kennitölu um leið og það er skráð í tölvukerfi fæðingarstofnunar. Kennitala auðkennir einstakling í öllum samskiptum við opinbera þjónustu. Það er skylda að gefa barni nafn(https://island.is/skraning-nafns) innan sex mánuða frá fæðingu.
Fæðingarorlof er fyrir foreldra. Réttur til fæðingarorlofs getur verið mismunandi eftir því hvort foreldri er á vinnumarkaði, í námi eða utan vinnumarkaðar. Hér er hægt að sækja stafrænt um fæðingarorlof þar sem ferlið sækir sjálfkrafa öll þau gögn sem þurfa að fylgja umsókninni.
Barn
Foreldrum ber skylda til þess að framfæra barn sitt(https://island.is/framfaersla) þar til það hefur náð 18 ára aldri. Skal framfærslu hagað með hliðsjón af högum foreldra og þörfum barns. Meðlag(https://island.is/medlag) eru reglubundnar greiðslur umgengnisforeldris til lögheimilisforeldris vegna framfærslu barns.
Leikskóli er fyrsta skólastig og er ætlað börnum undir skólaskyldualdri, það er undir 6 ára aldri. Leikskóli er ætlaður öllum börnum, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, menningu eða trú. Foreldrar sækja um leikskóladvöl(https://island.is/leikskolar) fyrir barn sitt í því sveitarfélagi þar sem barnið er skráð með lögheimili.
6 ára
Grunnskóli er annað skólastig(https://island.is/grunnskolar) og er tíu ára skóli samkvæmt lögum. Skólaskylda hefst við 6 ára aldur og heldur þangað til einstaklingur verður 16 ára gamall. Foreldrum er skylt að innrita börn sín í grunnskóla og sjá til þess að þau stundi námið. Sveitarfélögum er skylt að sjá öllum börnum og unglingum 6 - 16 ára fyrir grunnskólavist.
Þátttaka barna og unglinga í skipulögðu og ábyrgu frístundastarfi hefur sýnt fram á forvarnargildi og líkamlega og andlega vellíðan. Sveitarfélög hafa umsjón með úthlutun frístundastyrkja fyrir frístundastarf barna og unglinga.
Sjúkratryggingar taka þátt í greiðslu á tannlækningum fyrir börn og unglinga upp að 18 ára aldri. Greiða þarf árlegt komugjald 2.500 krónur.
Störf barna og unglinga
barn sem er yngra en 13 ára má taka þátt í menningar- eða listviðburðum og íþrótta- eða auglýsingastarfsemi, en ekki til annarra starfa.
unglingur á aldrinum 13 - 14 ára má ráða sig í starf af léttara tagi en ekki starf sem telst hættulegt eða líkamlega mjög erfitt.
unglingur á aldrinum 13 - 15 ára má ráða sig í sumarstarf. Flest stærri sveitarfélög reka vinnuskóla eða unglingavinnu á sumrin.
unglingur á aldrinum 15 - 17 ára má vinna létt störf í allt að 2 klst. á dag ef hann er í skyldunámi, annars 8 klst. á dag.
15 ára
Þegar unglingur nær 15 ára aldri verður hann sjálfstæður aðili barnaverndarmáls(https://island.is/logbrot-og-refsing). Unglingur getur talist sakhæfur 15 ára gamall sem þýðir að það má refsa honum ef hann fremur afbrot.
Unglingur sem orðinn er 15 ára getur sótt um réttindi til að keyra létt bifhjól(https://island.is/bifhjolarettindi) eins og vespu eða skellinöðru með hámarkshraða 45 km/klst.
16 ára
Við 16 ára aldur lýkur skólaskyldu í grunnskóla og þeir sem lokið hafa grunnskólaprófi geta sótt um að hefja nám í framhaldsskóla(https://island.is/framhaldsskolar). Nám í framhaldsskóla er ekki skylda en samkvæmt lögum er fræðsluskylda til 18 ára aldurs.
Árið sem unglingur verður 16 ár ber honum að greiða skatt af launum sem hann aflar sér.