Select Page
Árnar þagna – heimildarmynd
Heimildarmyndin Árnar þagna eftir Óskar Pál Sveinsson fjallar um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu bænda sem hafa byggt lífsviðurværi sitt á hlunnindum af stangveiðum í Noregi og á Íslandi.
Í júní 2024 fyrirskipaði Umhverfisstofnun Noregs (Miljødirektoratet) lokun 33 af þekktustu laxveiðiám landsins vegna þess skaða sem sjókvíaeldi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum. Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölskyldna sem hafa byggt afkomu sína á stangveiðihlunnindum í marga ættliði.