Hlekkur á forsíðu(https://www.listasafn.is/)

Í dag

Opna leit

English(https://www.listasafn.is/en/learn/krummi-kids-club/)

Kaupa miða(https://www.listasafn.is/midasala/)

Valmynd

Krakkaklúbburinn Krummi

Krakkaklúbburinn Krummi er fyrir börn á öllum aldri!

Nú á þremur stöðum! Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg, Safnahúsinu við Hverfisgötu og Listasafni Einars Jónssonar

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.

Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Listasafn Íslands tekur vel á móti öllum börnum og fylgdarmönnum þeirra!

Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.

Á döfinni

lau

7. nóv

kl. 14:00

Krakkaklúbburinn Krummi

Blátt lítið blóm eitt er

Krummi

Listasafnið

Blátt lítið blóm eitt er Við njótum þess að skoða litríkan og fjölbreyttan blómaheim Eggert Pétursson og veitum athygli lögun, litum og smáatriðum blómanna í verkum hans. Í listaverkstæðinu búum við síðan til okkar eigin blómabreiðu og leyfum ímyndunaraflinu að blómstra í litríkri sköpun.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Staðsetning: Fríkirkjuvegur 7

lau

7. nóv

14:00 — 16:00

Sjá meira : Krakkaklúbburinn Krummi(https://www.listasafn.is/heimsaekja/vidburdir/blatt-liti%C3%B0-blom-eitt-er-vi%C3%B0-njotum-%C3%BEess-a%C3%B0-sko%C3%B0a-/)

lau

14. nóv

kl. 14:00

Krakkaklúbburinn Krummi

Sniðug snjókorn

Krummi

Safnahúsið

Sniðug snjókorn Náttúran er full af formum, mynstrum og litlum undrum. Við skoðum verkið Stormur á stöpli eftir Magnús Sigurðarson á 4. hæð Safnahússins og veitum athygli þeim formum og hreyfingum sem þar birtast. Innblásin af náttúrunni sem finna má í listaverkunum á safninu búum við til okkar eigin kristalla sem hægt er að taka með sér heim.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Staðsetning: Safnahúsið við Hverfisgötu

lau

14. nóv

14:00 — 16:00

Sjá meira : Krakkaklúbburinn Krummi(https://www.listasafn.is/heimsaekja/vidburdir/sni%C3%B0ug-snjokornnatturan-er-full-af-formum-mynstrum/)

lau

21. nóv

kl. 14:00

Krakkaklúbburinn Krummi

Glóandi geislabaugar

Krummi

Listasafn Einars Jónssonar

Glóandi geislabaugar Geislabaugar eru algeng tákn fyrir heilagleika og góðmennsku.