Lífæðar landsins: Fólkið á bak við myllurnar
Um miðjan september var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver Íslands, gangsett austan Þjórsár. Þetta voru tímamót í íslenskri orkusögu, en á bak við þau liggur löng vegferð. Rannsóknir á svæðinu hófust fyrir meira en áratug og síðan tók við langt undirbúnings- og leyfisferli. Loks kom framkvæmdin sjálf, þar sem risavaxnar vindmyllur voru fluttar og reistar á hálendinu.
Í nýjasta þætti hlaðvarps Samorku setjumst við niður með tveimur sérfræðingum sem þekkja verkefnið betur en flestir, þeim Elínu Hallgrímsdóttur, staðarverkfræðingi, og Sigurgeiri Birni, yfirverkefnisstjóra Vaðölduvers, bæði hjá Landsvirkjun.
Í léttu spjalli við Hafdísi Helgu líta þau til baka yfir verkefnið og deila sögum og reynslu sem sjaldan rata í fréttirnar. Þau segja frá áskorununum, augnablikunum sem sitja eftir og því hvað kom á óvart.
Ertu að leita að þessu?
Eyðublöð(https://samorka.is/utgafa-og-midlun/eydublo%CC%88d/)
Bæklingar(https://samorka.is/utgafa-og-midlun/utgefid-efni/handbaekur/)