Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi(https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112)
Beint í efni
Valmynd
Stefna gegn einelti, áreitni og ofbeldi
Stefna Neyðarlínunnar er að starfsfólk félagsins upplifi sig öruggt í öllum samskiptum og þurfi ekki að þola áreitni, einelti eða ofbeldi af neinu tagi.
Stefna Neyðarlínunnar
Kurteisi í samskiptum er grundvallarregla hjá starfsmönnum, stjórnendum sem og við viðskiptamenn félagsins. Einnig að komið sé fram við alla af virðingu og í samræmi við siðareglur Neyðarlínunnar.
Markmið stefnu gegn einelti, áreitni og ofbeldi er að koma í veg fyrir slíka háttsemi og aðra ótilhlýðilega hegðun í starfsemi Neyðarlínunnar með forvörnum og jafnframt að tryggja að úrræði séu til staðar telji aðili sig hafa orðið fyrir slíkum brotum.
Við mat á því hvort viðbragðsáætlun sé virkjuð skiptir ekki máli hvort annar en starfsmaður sé gerandi eða þolandi. Þá skiptir ekki máli hvort atvikið sem um ræðir á sér stað utan vinnustaðar svo lengi sem starfsmenn eiga hlut að máli.
Einstaklingur sem telur sig hafa orðið fyrir, eða orðið vitni að, ósæmilegri hegðun geta fyllt út eyðublað hér fyrir neðan til að koma tilkynningu eða ábendingu á framfæri við siðanefnd félagsins. Starfsmaður sem þess óskar getur þó jafnan borið málið upp við framkvæmdastjóra félagsins og leitað aðstoðar hans, kjósi hann það fremur. Siðanefnd Neyðarlínunnar tekur öll mál til skoðunar og/eða beinir í viðeigandi farveg. Mál sem varða framkvæmdarstjóra skal vísa til stjórnarformanns Neyðarlínunnar.
Í Siðanefnd Neyðarlínunnar eru: Framkvæmdarstjórn Neyðarlínu ohf.
Skilgreiningar
Einelti er síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.
Kynferðisleg áreitni er hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.
Kynbundin áreitni er hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.
Ofbeldi er hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.
Viðbragðsáætlun Neyðarlínunnar
Sé ábendingu eða umkvörtun um óæskilega hegðan, sem reglum þessum er ætlað að taka til komið á framfæri við framkvæmdastjóra skal hann hið fyrsta í samráði við þann sem beint hefur til hans kvörtun eða ábendingu meta hvort rétt sé eða skylt að setja málið í formlega umfjöllun siðanefndar félagsins eða hvort málið sé þess eðlis að óformlegri viðbrögð séu líkleg til að skila árangri.
Koma skal ábendingum á framfæri skriflega með tölvupósti eða í gegnum ábendingarhnapp á innri vef Neyðarlínunnar.
Móttaka erinda skal staðfest innan 48 klst.
Siðanefnd ber skylda til að bregðast eins fljótt og unnt er við öllum kvörtunum um áreitni, einelti, ofbeldi eða aðra óæskilega framkomu sem valdið getur starfsmönnum ama eða óþægindum. Nefndin skal sýna nærgætni, sanngirni og gæta hlutleysis við meðhöndlun viðkvæmra mála.
Fulltrúi/fulltrúar siðanefndar skal/skulu ræða aðila málsins innan tveggja vikna.
Leiðbeina skal starfmönnum um meðferðar- og stuðningsúrræði.
Ef ástæða er til er óháður aðili fenginn til að meta aðstæður og hlutast til um úrlausn.
Leiði mat á aðstæðum fram þá niðurstöðu að einelti, áreitni eða ofbeldi hafi ekki átt sér stað á vinnustaðnum skal þó gripið til aðgerða sem hafi það að markmiði að draga úr líkum á því, að einstakir starfsmenn finni til óþæginda í samskiptum á vinnustaðnum.
Teljist atvikið alvarlegt verður það kært til lögreglu en þó aðeins með samþykki þolanda.