Ef þú átt í vandræðum með að ná sambandi við 112, smelltu þá á netspjall eða hringdu í 599-0112. Aðrar leiðir til að ná sambandi(https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112)
Beint í efni
Valmynd
Neyðarlínan(https://www.112.is/um-neydarlinuna)
Samtal við 112
Samtal við 112
Hægt er að hringja í 112 og hefja netspjall á 112.is eða í gegnum 112 Neyðarlínu appið. Öll samtöl eru afgreidd á sama hátt.
Efnisyfirlit
Að hafa samband í neyð Að hafa samband í neyð
112 er barnanúmerið 112 er barnanúmerið
Viðbragðsaðilar Viðbragðsaðilar
Afgreiðsla erinda Afgreiðsla erinda
Að hafa samband í neyð
Upplýsingagjöf frá innhringjanda er mikilvæg til þess að viðbragðsaðilar átti sig betur á umfangi atviksins og aðstæðum á vettvangi.
Ákvarðanir um hvaða bjargir eru boðaðar og á hvaða forgangi eru meðal annars byggðar á upplýsingum frá þeim sem hefur samband frá vettvangi. Taktu þér tíma í samtalið og reyndu að draga upp sem skýrasta mynd af vettvangi.
Í neyðaratburði má búast við að á vettvangi skapist öngþveiti, hræðsla og streita. Þegar mikið álag myndast gengur allt miklu hægar. Ef þú veist hvernig á að bregðast við minnkar álagið og streitan. Það skapar dýrmætan tíma sem getur oft skilið á milli lífs og dauða. Þá er gott að undirbúa sig fyrir að svara eftirfarandi spurningum.
Hvar er atburðurinn?
Hver ert þú?
Hvað gerðist?
Hvenær?
Ekki slíta samtalinu! Neyðarvörður ákveður hvenær nauðsynlegar upplýsingar hafi borist frá þér.
Eftir að samtalinu lýkur er einnig mikilvægt að fylgjast með þeim veika eða slasaða, undirbúa og tryggja móttöku viðbragðsaðila.
Hafa samband aftur ef ástand versnar.
Opna hurðir eða taka úr lás.
Fylgjast með viðbragðasðilum sem eru á leiðinni.
Taka á móti þeim sem koma.
Ef þú ert í vafa hvort þú eigir að hafa samband eða ekki, hafðu þá samband í 112.
Athugaðu að öll samtöl til 112 eru vistuð.
Það er líka hægt að hringja í 1-1-2 þó þú sért erlendis. Þá er númerið +354 570-2112
Þú nærð líka sambandi við 1-1-2 í gegnum gervihnött. Þá er númerið +354 809-0112
Ef þú ert innanlands en nærð ekki sambandi í 1-1-2 beint, þá er númerið 599-0112
Fleiri leiðir til að ná sambandi(https://www.112.is/mikilvaegar-upplysingar-vardandi-simtol-i-112)
Stutt æfing fyrir neyðarsímtal
112 er barnanúmerið
Neyðarlínan tekur á móti tilkynningum til Barnaverndar. Ef þú hefur áhyggjur af barni og telur að foreldrar þess séu ekki færir um góða umönnun þess, ættir þú að tilkynna til barnaverndar.
Í 16. gr. barnaverndarlaga kemur fram að öllum er skylt að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barn: a. búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, b. verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða c. stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Þá er hverjum manni skylt að gera barnavernd viðvart ef ástæða er til að ætla að heilsu eða lífi ófædds barns sé stefnt í hættu með óviðunandi eða háskalegu líferni þungaðrar konu, t.d.