Leita/Spyrðu Leita/Spyrðu Leita/Spyrðu(https://www.harpa.is/is/spyrdu)

Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Vorið 2011 varð Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús heimili Sinfóníunnar.

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í 75 ár og heldur um 100 tónleika á hverju starfsári með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, auk þess að vera í samstarfi við listafólk úr öðrum greinum tónlistar.

Sinfónían var stofnuð vorið 1950 og hefur um langt árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum enda fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis.

Hljómsveitin hljóðritar fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki sem hafa m.a. komið út á vegum Deutsche Grammophon, Sono Luminus, Chandos og BIS. Hljóðritanirnar hafa hlotið fjölda viðurkenninga auk tilnefningar til Grammy-verðlauna fyrir besta hljómsveitardisk.

Finnski stjórnandinn Eva Ollikainen hefur gegnt stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda frá árinu 2020. Osmo Vänskä er heiðursstjórnandi hljómsveitarinnar og Vladimir Ashkenazy er aðalheiðursstjórnandi hennar. Anna Þorvaldsdóttir tók við stöðu staðartónskálds í byrjun árs 2018, en áður hafði Daníel Bjarnason gegnt starfinu til þriggja ára en nú gegna þau stöðu listamanna í samstarfi við hljómsveitina. Ólafur Kjartan Sigurðarsson er staðarlistamaður hljómsveitarinnar starfsárið 2024-25.

Smelltu hér til að skoða vef Sinfóníunnar(https://www.sinfonia.is/)

Næstu tónleikar

Næstu tónleikar

Daði Freyr og Sinfó - IA26 Special Event 5. nóvember 2026, 19:00(https://www.harpa.is/is/events/21287)

Psycho Bíótónleikar - SInfóníuhljómsveit Íslands 12. nóvember 2026, 19:30(https://www.harpa.is/is/events/21783)

Opnar æfingar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 12 sýningar(https://www.harpa.is/is/events/22135)

Storgårds stjórnar Bruckner 2 - Sinfóníuhljómsveit Íslands 19. nóvember 2026, 19:30(https://www.harpa.is/is/events/21655)

Hannigan & Horsch - Sinfóníuhljómsveit Íslands 26. nóvember 2026, 19:30(https://www.harpa.is/is/events/21696)

Aðventutónleikar Sinfóníunnar - Sinfóníuhljómsveit Íslands 3. desember 2026, 19:30(https://www.harpa.is/is/events/21777)

Jólatónleikar Sinfóníunnar - Sinfóníuhljómsveit Íslands 4 sýningar(https://www.harpa.is/is/events/21706)