Leita/Spyrðu Leita/Spyrðu Leita/Spyrðu(https://www.harpa.is/is/spyrdu)

Persónu­vernd­ar­stefna

Harpa tekur á móti miklum fjölda gesta á ári hverju og er félaginu umhugað um meðferð persónuupplýsinga gesta sinna og hefur í því sambandi sett sér eftirfarandi persónuverndarstefnu.

Hlutverk Hörpu er að vera vettvangur fyrir tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar ráðstefnur, fundi og samkomur, innlendar og erlendar. Hlutverk hússins er jafnframt að vera miðstöð mannlífs fyrir alla landsmenn í miðborg Reykjavíkur og áfangastaður ferðamanna, innlendra og erlendra, sem vilja kynna sér bygginguna, þjónustu hennar, arkitektúr og listaverk í húsinu.

Þetta hlutverk rækir Harpa einkum með því að leigja út sali og rými til tónlistarviðburða, ráðstefnuhalds, funda og tengdrar starfsemi á samkeppnishæfu verði með því að standa fyrir samstarfsverkefnum og eigin verkefnum eftir því sem rekstur félagsins leyfir.

Harpa er í eigu ríkisins (54%) og Reykjavíkurborgar (46%) og er opinbert hlutafélag.

Stefna þessi tekur til allra þeirra persónuupplýsinga sem Harpa safnar hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti eða öðrum hætti svo sem á pappír.

Stefnan er ávallt aðgengileg á vef Hörpu en jafnframt er hægt að skoða stefnuna þegar farið er í gegnum miðasöluferlið. Allt kapp hefur verið lagt á að útskýra vinnslu persónuupplýsinga á einfaldan og hnitmiðaðan hátt.

Stefna þessi tekur mið af lögum nr. 90./2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og var samþykkt á stjórnarfundi 4. mars 2020. Stefnan var síðast yfirfarin og uppfærð 8. febrúar 2022.

Tekið er við ábendingum og fyrirspurnum á netfanginu personuvernd@harpa.is.

Ábyrgð

Harpa ber ábyrgð á allri meðferð persónuupplýsinga sem einstaklingar veita Hörpu og skuldbindur sig að tryggja að meðferð þessara upplýsinga sé í samræmi við þau lög sem eru í gildi hverju sinni.

Söfnun og meðferð persónuupplýsinga

Harpa vinnur eftirfarandi persónuupplýsingar einstaklinga við miðakaup þeirra á viðburði í Hörpu:

Fullt nafn og netfang.

Að fengnu upplýstu samþykki einstaklinga vinnur Harpa eftirfarandi persónuupplýsingar við miðakaup á viðburði í Hörpu:

Kennitala, heimilisfang og símanúmer.

Þessar upplýsingar notar Harpa til að:

Tryggja afhendingu miða til réttra eiganda.

Senda einstaklingum upplýsingar ef breytingar eiga sér stað á þeim viðburðum, sem miðar hafa verið keyptir á.

Senda einstaklingum miða í pósti sé þess er óskað.

Senda einstaklingum upplýsingar um aðra viðburði sem eiga sér stað í Hörpu hafi einstaklingur óskað eftir því.

Sérsníða upplýsingar og senda einstaklingum, sem þess óska upplýsingar um viðburði er snúa að áhugasviði þeirra.

Einstaklingar geta jafnframt skráð sig á póstlista Hörpu og fengið upplýsingar um ýmsa viðburði sem eiga sér stað í Hörpu. Viðskiptavinir geta hvenær sem þeir óska afskráð sig af þessum póstlista.

Harpa notar vefkökur til að greina hvaða viðburðir og fréttir vekja áhuga einstaklinga sem nota vefinn harpa.is. Vefkökur eru litlar upplýsinga- og textaskrár. Þær eru vistaðar í vafra eða tæki einstaklinga þegar skoðaðar eru vefsíður. Vefkökur vista ekki persónuupplýsingar eins og nöfn, netföng, símanúmer eða kennitölur.

Einstaklingar geta eytt vefkökum sem eru vistaðar í tækjum þeirra.

Google analytics vefkökur og facebook pixel er notað til að deila upplýsingum með samstarfsaðilum sem geta notað þær til að auglýsa viðburði og til að fá upplýsingar um hvaðan einstaklingurinn kom inn á vefsíðuna. Þessar upplýsingar má nota til að birta einstaklingum auglýsingar sem Harpa metur svo að einstaklingur hafi áhuga á að sjá og til að sérsníða þau skilaboð sem Harpa birtir einstaklingum. Harpa deilir ekki upplýsingum sem eru persónugreinanlegar með þessum aðilum eða vefsíðum þriðja aðila sem birta auglýsingar á vegum Hörpu.

Miðlun

Harpa leggur áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við lög um persónuvernd og að öryggi þeirra sé tryggt með viðeigandi hætti. Engum upplýsingum, sem einstaklingar afhenda Hörpu, er miðlað til annarra en þess starfsfólks sem vinnu sinnar vegna þarf að meðhöndla upplýsingarnar. Starfsfólk Hörpu skuldbindur sig til að viðhalda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem það meðhöndlar um einstaklinga og gesti í Hörpu.