Fara í efni

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands(https://www.isi.is/)

33 hljóta starfslaun afreksíþróttafólks árið 2027

30. okt. 2026

Deildu

Úthlutað hefur verið starfslaunum afreksíþróttafólks fyrir tímabilið 1. nóvember 2026 til ársloka 2027. Þetta er annað árið sem íþróttafólk í fremstu röð fær laun fyrir vinnu sína. Fyrstu starfslaununum var úthlutað í desember í fyrra og urðu þau að veruleika með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytisins sem jók framlög sín til afreksíþrótta.

Markmiðið er að gera íþróttafólkinu kleift að helga sig íþrótt sinni og keppa við þau bestu á alþjóðavettvangi án þess að þurfa að velja á milli íþróttarinnar og afkomunnar.

Alls bárust umsóknir frá 22 sérsamböndum fyrir 102 einstaklinga. Sótt var samhliða um starfslaun og einstaklingsstyrki úr Afrekssjóði ÍSÍ. Sérsamböndin forgangsröðuðu umsækjendum sínum og var sú röðun höfð til hliðsjónar við mat á umsóknum.

Í ár hljóta 29 einstaklingar og tvö pör starfslaun. Þau koma úr 11 íþróttagreinum. Úthlutun byggir á faglegu heildarmati samkvæmt úthlutunarreglum ÍSÍ. Þar er meðal annars horft til árangurs á stórmótum síðustu tveggja ára, framfara, umgjarðar og möguleika á árangri á stórmótum á komandi árum. Hópurinn getur því breyst á milli ára.

Íþróttafólkinu er raðað í A-, B- eða C-flokk. Starfslaun í A-flokki nema 600.000 kr. á mánuði, í B-flokki 300.000 kr. og í C-flokki 150.000 kr. Auk launanna fær íþróttafólkið faglegan stuðning frá fagteymi Afreksmiðstöðvar Íslands svo sem á sviði sálfræði, sjúkraþjálfunar, næringarfræði og styrktarþjálfunar og fer umfang hans einnig eftir flokki.

„Stofnun Afreksmiðstöðvar Íslands og innleiðing starfslauna eru markverð skref sem hafa skapað mikilvæga umgjörð fyrir íslenskt afreksíþróttafólk til að ná sem bestum árangri. Svo halda megi áfram á þeirri braut þarf aukinn stuðning, bæði frá hinu opinbera og atvinnulífinu, því fjárfesting í íslensku afreksíþróttafólki skilar sér margfalt til baka,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.