Fara í efni

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands(https://www.isi.is/)

Syndum hefst 1. nóvember – syndum saman hringinn í kringum landið!

29. okt. 2026

Deildu

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við Sundsamband Íslands, stendur fyrir Syndum, árlegu landsátaki í sundi, dagana 1.–30. nóvember. Átakið er nú haldið í sjötta sinn. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna, enda er sund fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.

Markmiðið er að hvetja fólk til að hreyfa sig oftar og meira í daglegu lífi og nýta sundið til þess. Sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungun og vöðva líkamans og er bæði frábær leið til að hlúa að heilsunni og skemmtileg tómstundaiðja.

Hversu marga hringi syndum við í ár?