En glish(https://www.ima.is/)
Leit
Mínar síður(https://www.lyfjastofnun.is/breytingar-a-thjonustugatt/)
Efnisyfirlit
Loka
Þessi vefur er ekki lengur uppfærður – opinber vefur Lyfjastofnunar er island.is/s/lyfjastofnun(https://island.is/s/lyfjastofnun)
Skrifaðu leitarorð og ýttu á enter
Hvað viltu finna?
Sláðu inn leitarorð
Persónuverndarstefna
Lyfjastofnun er umhugað um persónuvernd.
Ábyrgðaraðili
Lyfjastofnun ber ábyrgð á söfnun og skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi stofnunarinnar. Lyfjastofnun þarf að vinna ákveðnar persónuupplýsingar til að geta uppfyllt hlutverk og skyldur stofnunarinnar samkvæmt lögum sem um starfsemi stofnunarinnar gilda.
Hvaða persónuupplýsingar vinnur Lyfjastofnun?
Lyfjastofnun safnar persónuupplýsingum á grundvelli mismunandi lagaákvæða. Persónuupplýsingar berast frá einstaklingum, heilbrigðisstarfsfólki, eftirlitsþegum, fyrirtækjum, starfsmönnum, umsækjendum um störf og frá öðrum opinberum stofnunum. Lyfjastofnun leggur áherslu á að söfnun persónuupplýsinga gangi ekki lengra en þörf er á hverju sinni til að sinna því hlutverki sem stofnuninni er ætlað samkvæmt lögum.
Meðferð og öryggi gagna hjá Lyfjastofnun
Meginregla í starfsemi Lyfjastofnunar er að varðveita persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsyn krefur til að sinna lögbundnu hlutverki stofnunarinnar, nema til staðar sé skylda samkvæmt lögum eða samningi til að geyma gögn lengur. Lyfjastofnun er afhendingarskyldur aðili á grundvelli laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og er því óheimilt að eyða skjölum sem falla undir gildissvið laganna.
Lyfjastofnun hefur heimild Þjóðskjalasafns til rafrænna skila á gögnum úr málakerfi stofnunarinnar (frá og með 01. janúar 2022). Reglur þar um kveða á um að gögnum skuli skilað rafrænt til Þjóðskjalasafns á fimm ára fresti. Þótt Lyfjastofnun hafi skilað gögnum til Þjóðskjalasafns hefur Lyfjastofnun að öllu leyti umsjón með gögnunum, þar til 30 ár eru liðin frá því þau urðu til. Persónuupplýsingar sem unnið er með hjá stofnuninni og falla undir lög nr. 77/2014, eru því alfarið í höndum Lyfjastofnunar til 30 ára.
Aðrar upplýsingar eru varðveittar hjá stofnunni ýmist í tvö ár eða sjö ár skv. bókhaldslögum.
Aðgangur starfsmanna að gögnum fer eftir starfssviði starfsmanns. Persónuupplýsingar eru aðeins aðgengilegar starfsfólki Lyfjastofnunar þegar þær eru nauðsynlegar við úrlausn einstakra verkefna.
Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema skylda sé til þess skv. lögum eða þess krafist með dómsúrskurði. Sérstakar reglur gilda um upplýsingar um fjárhags- og viðskiptahagsmuni fyrirtækja og vísindalegar upplýsingar og tækniupplýsingar fyrirtækja.
Verktakar og þjónustuaðilar undirrita trúnaðaryfirlýsingar og hafa einungis aðgang að gögnum í kerfum stofnunarinnar að svo miklu leyti sem nauðsynlegt er til viðgerðar og viðhalds kerfa.
Trúnaður og þagnarskylda starfsmanna Lyfjastofnunar
Starfsfólk Lyfjastofnunar er upplýst um lög og reglur varðandi persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og hvernig framfylgja skal lögum og reglum um persónuvernd.
Allir starfsmenn eru bundnir þagnarskyldu samkvæmt lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og helst hún þótt látið sé af störfum. Við undirritun ráðningarsamnings skrifa allir starfsmenn undir yfirlýsingu þar sem þagnarskyldan er áréttuð. Verktakar og þjónustuaðilar Lyfjastofnunar undirrita einnig trúnaðaryfirlýsingar. Starfsmenn Lyfjastofnunar skulu gæta fyllsta hlutleysis í störfum sínum hjá stofnuninni og mega ekki taka að sér aukastörf sem geta á einhvern hátt stefnt trúnaði viðkomandi gagnvart störfum þeirra í hættu samkvæmt starfsmannastefnu Lyfjastofnunar.
Til að tryggja að starfsmenn Lyfjastofnunar sýni rétta breytni í störfum sínum innan og utan stofnunar hefur Lyfjastofnun sett sér siðareglur í samræmi við gildi stofnunarinnar sem eru Gæði, Traust, Þjónusta.
Rafræn vöktun
Vöktun fer fram í öryggis- og eignavörsluskyni en eftirlitsmyndavélum hefur verið komið upp í stigagangi við innganga stofnunarinnar á annarri og þriðju hæð hússins. Við umrædda vöktun er þess gætt að virða einkalífsrétt þeirra sem sæta vöktun og forðast er allt óþarfa inngrip í einkalíf þeirra. Nánari upplýsingar um rafræna vöktun má finna hér(https://www.lyfjastofnun.is/eftirlitsmyndavelar/).
Myndbirtingar á vef og samfélagsmiðlum Lyfjastofnunar
Á öllum opnum viðburðum á vegum Lyfjastofnunar eru viðstaddir látnir vita ef upptaka er í gangi og að myndband ásamt myndum sem teknar eru á meðan á viðburðinum stendur gætu ratað á vef stofnunarinnar og/eða samfélagsmiðla stofnunarinnar. Orðið er við beiðnum þeirra sem vilja ekki sjást á myndbandsupptöku og/eða myndum.
Áður en myndir af starfsfólki eru birtar á vef, samfélagsmiðlum eða útgefnu efni á vegum Lyfjastofnunar er leitað munnlegs samþykkis hjá viðkomandi. Það sama á við ef viðkomandi er í bakgrunni. Orðið er við beiðnum þeirra sem ekki vilja sjást á myndefni frá stofnuninni.
Ef einhver mynd hefur ratað á samfélagsmiðla á vegum stofnunarinnar eða vef og samþykki fyrir því hefur ekki legið fyrir frá einhverjum þeirra sem er á myndinni (í forgrunni eða bakgrunni) og viðkomandi vill fá myndina af sér fjarlægða getur sá hinn sami sent beiðni þess efnis til Lyfjastofnunar á tölvupóstfangið [email protected](https://www.lyfjastofnun.is/cdn-cgi/l/email-protection#a3d0c2ced0c8cad3d7c2c7c6cacfc7e3cfdac5c9c2d0d7ccc5cdd6cd8dcad0).
Hverjir hafa aðgang að upplýsingum Lyfjastofnunar?
Allir einstaklingar eiga rétt á ákveðnum upplýsingum sem varða þá sjálfa og skráðar eru hjá Lyfjastofnun.
Hvernig nálgast ég upplýsingar um mig?
Persónuverndarlögin veita þér rétt til staðfestingar á því hvort Lyfjastofnun vinni persónuupplýsingar um þig og ef svo er, rétt til fá aðgang að þeim persónuupplýsingunum. Tekið er á móti beiðnum á rafrænu formi í gegnum Mínar síður(https://minar.serlyfjaskra.is/). Hægt er að skrá sig inn á Mínar síður Lyfjastofnunar með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Einnig er hægt að nálgast eigin persónuupplýsingar með því að fylla út eyðublað: Beiðni um aðgang að persónuupplýsingum og afhenda í afgreiðslu Lyfjastofnunar(https://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/eydublod/#q=pers%C3%B3nuuppl%C3%BDsing). Framvísa þarf persónuskilríki sem gefið er út af opinberum aðila þegar beiðnin er lögð inn. Vinnsla beiðnar fer ekki af stað fyrr en persónuskilríkjum hefur verið framvísað. Ekki er tekið við beiðnum um aðgang í bréfapósti, í tölvupósti né í gegnum síma. Þessar ráðstafanir eru nauðsynlegar þar sem tryggja verður að persónuupplýsingar séu aðeins afhentar þeim sem þær varða.