En glish(https://www.ima.is/)

Leit

Mínar síður(https://www.lyfjastofnun.is/breytingar-a-thjonustugatt/)

Efnisyfirlit

Loka

Þessi vefur er ekki lengur uppfærður – opinber vefur Lyfjastofnunar er island.is/s/lyfjastofnun(https://island.is/s/lyfjastofnun)

Skrifaðu leitarorð og ýttu á enter

Hvað viltu finna?

Sláðu inn leitarorð

Umhverfis- og loftslagsstefna Lyfjastofnunar

Lyfjastofnun hefur sjálfbæra þróun og vernd umhverfisins að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Á þann hátt leggur stofnunin sitt af mörkum til að stuðla að því að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun verði mætt.

Lyfjastofnun fylgir lögum og reglum um umhverfismál í starfsemi sinni. Allt starfsfólk hefur umhverfisstefnu þessa að leiðarljósi við störf sín. Stefnan er byggð á umhverfisstefnu stjórnarráðsins(https://www.stjornarradid.is/gogn/stefnur-og-aaetlanir/stefnur-raduneytanna/umhverfisstefna-stjornarradsins/).

Umhverfis- og loftslagsstefnan og framkvæmd hennar er liður í daglegu starfi stofnunarinnar. Með því að draga úr álagi á umhverfið og vekja áhuga á innra umhverfisstarfi leggur Lyfjastofnun sitt af mörkum til betra samfélags. Stefnan tekur til allrar starfsemi stofnunarinnar, þ.m.t. matarsóunar, ræstinga, innkaupa, húsnæðis, vinnuumhverfis, samgangna, notkunar auðlinda og meðferðar á sorpi. Fylgt er stefnu ríkisstjórnar Íslands um vistvæn innkaup og rafræna stjórnsýslu.

Markmið

Að Lyfjastofnun dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda frá rekstri um 40% miðað við árið 2019. Stofnunin stefnir að því að ná þessu markmiði fyrir árið 2030.

Að hafa sjálfbæra þróun og vernd umhverfisins að leiðarljósi í öllu innra og ytra starfi.

Að úrbætur í rekstri og þjónustu taki mið af því að minnka umhverfisáhrif og losun gróðurhúsalofttegunda

Að halda auðlinda- og efnanotkun í lágmarki og draga úr mengun eins og kostur er.

Að vinna stöðugt að því að draga úr úrgangi og stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu hans.

Að efla vistvænar samgöngur í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.

Aðföng

Við innkaup skal tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Ef vörur eða þjónusta eru sambærilegar að öðru leyti ber að velja þann kost sem telst síður skaðlegur umhverfinu.

Velja skal umhverfismerktar vörur í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup og nota rammasamning Fjársýslunnar.

Lágmarka notkun einnota aðfanga, t.d. einnota borðbúnaðar og óþarfa umbúða.

Rekstur og viðhald

Allur tölvu- og skrifstofubúnaður skal bera viðeigandi umhverfis- og orkusparandi merkingar.

Upplýsa skal verktaka um stefnu í umhverfis- og loftslagsmálum og gera kröfur um að þeir fylgi henni.

Leigusali Lyfjastofnunar er Reitir fasteignafélag. Félagið hefur sett sér umhverfisstefnu(https://www.reitir.is/fjarfestar/samthykktir-stefnur-starfsreglur#stefna-vardandi-samfelagslega-abyrgd) og sjálfbærnistefnu(https://reitir.cdn.prismic.io/reitir/e392872d-7910-4ecf-ac84-5d6e11a7d743_reitir-sjalfbaerniskyrsla-2023.pdf) sem gildir m.a.